Wayne Rooney býðst ekki lengur að stíga fæti inn fyrir dyr í húsi tengdaforeldra sinna en pabbi Colleen hefur sagt að hann fái aldrei að koma þar meir.
Allar líkur eru á að skilnaður verði á milli þeirra hjóna, Coleen og Wayne Rooney, eftir að upp komst um framhjáhald hans með vændiskonu meðan Coleen gekk með son þeirra hjóna, Kai, sem nú er tíu mánaða.
Coleen flúði heim til foreldra sinna eftir að Rooney hringdi í hana og játaði að hafa sofið hjá vændiskonunni Jenny Tompson.
Rooney á að hafa grátbeðið Coleen um að tala við sig og bauðst meira að segja til að draga sig út úr leiknum á móti Sviss sem fer fram í kvöld. En Coleen sagði kalt við Rooney:
Mig langar ekkert til að sjá þig. Farðu bara og spilaðu fótbolta, svo bætti hún við:
Ég þarf ekkert á þér að halda lengur.
Samkvæmt heimildarmanni The Sun sem er vinkona Coleen á Rooney að hafa játað það sem hann gerði án þess að gera neina tilraun til að útskýra eða afsaka það í burtu. Hann sagðist bara óska þess að þetta hefði aldrei gerst.
Eiginkona hans var í áfalli sem síðar breyttist í reiði og hún finnur að hún þarf ekkert á honum að halda lengur. Hún er sjálf með sjónvarpsþætti sem hún græðir vel á og getur því vel lifað sjálfstæðu og óháðu lífi án Rooneys.
Hún þarf ekki lengur að sætta sig við niðurlæginguna.
Rooney hefur oft áður verið gripin með vændiskonum, meðal annars hinni 55 ára gömlu Patriciu Tierney og annari 48 ára.
Coleen hefur fyrirgefið honum áður en kynni hans af Jenny Tompson mun vera dropinn sem fyllti mælinn.
Traustið er farið úr sambandinu og hún spyr sig hvað fleira Rooney hafi tekið sér fyrir hendur. Á sama tíma veltir hún því fyrir sér hvort hún sé ekki nægilega falleg eða góð fyrir hann.
Þau Coleen og Rooney höfðu verið saman í sex ár áður en þau giftu sig fyrir tveimur árum.
Að sögn heimildarmanna hafa liðsfélagar hans í enska landsliðinu þurft að halda frá honum áfengi því það freistar Rooney að drekkja sorgum sínum. Hann telur sig hafa misst eiginkonuna fyrir fullt og allt.

