Þriðjudagur - 7.9 2010 - 18:00 - Ummæli ()

Lady Gaga á spítala eftir megrunarkúr: Fyrrum kærastinn gefur út megrunarbók

Það hefur gengið á ýmsu í lífi Lady Gaga að undanförnu en hún hefur m.a. verið lögð inn á spítala í kjölfar öfgafulls megrunarkúrs sem hún fór á.

Nokkrum dögum síðar kemur á daginn að fyrrverandi/núverandi kærasti hennar, Luc Carl, hyggst gefa út bók um hvernig eigi að léttast.

Luc þessi er ansi sérstakur náungi. Hann rekur bar í New York og kallar sig ýmsum nöfnum en hann segist vera bæði tónlistarmaður, veitingamaður, einkaþjálfari, rithöfundur, fagmaður í keilu, megrunargúrú og margt fleira.

Bók hans mun vera væntanleg á næsta ári.

Luc Carl og Lady Gaga kynntust í New York fyrir meira en fimm árum og voru par. Þau hafa hætt og byrjað saman á víxl en nú eiga þau víst að vera saman þó að nýjustu fregnir hermi að hann hafi hegðað sér svipað og síðasti kærasti Amy Winehouse, Reg Travis sem sást ganga hönd í hönd með fyrrverandi kærustu sinni í garði um miðja nótt. Hann er semsagt enn með sinni fyrrverandi þó að hann þykist vera í sambandi við Lady Gaga.

Þetta leiðir líkur að því að Luc Carl, líkt og Travis með Amy, hafi reynt að notfæra sér frægð hennar sjálfum sér til framdráttar.

Á heimasíðu Luc Carl má lesa sitthvað um megrunarpælingar hans en þær virðast ganga út á að panta ‘réttu’ áfengu drykkina á barnum.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar