Miðvikudagur - 8.9 2010 - 12:24 - Ummæli ()

Hafa eytt 8 milljörðum í ljósleiðaranet sem skilað hefur 3,5 milljörðum

Fjárfest fyrir tvöfalt meira en tekjur nema

Dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, Gagnaveitan, hefur eytt sem nemur tæplega átta milljörðum króna á síðustu sex árum til uppbyggingar á ljósleiðaraneti á höfuðborgarsvæðinu. Tekjur fyrirtækisins af þessu á sama tímabili nema aðeins 3,5 milljörðum.

Morgunblaðið gerir þetta að umtalsefni en endurskipulagning OR stendur fyrir dyrum og segir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður, að starfsemi Gagnaveitunnar sé eitt af því sem verið er að skoða.

Af fjárfestingum Gagnaveitunnar á þessu ári má ráða að þar á bæ séu menn að bæta við í stað þess að draga saman því fjárfest hefur verið fyrir tíu milljónir króna hærri upphæð nú en á sama tíma í fyrra.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar