Miðvikudagur - 8.9 2010 - 16:42 - Ummæli ()

Jón Gnarr segist mest skoða klám á netinu. Sóley krefst umræðna um málið í borgarstjórn

Sóley Tómasdóttir, oddviti vinstri grænna í Reykjavík, hefur óskað eftir því að ummæli Jóns Gnarr borgarstjóra um klámnotkun hans verði tekin til umræðu í borgarráði í fyrramálið. Jón Gnarr var spurður að því í viðtali við frönsku fréttastofuna AFP hvað hann skoðaði helst á netinu og svaraði Jón hlæjandi: „Aðallega klám.“

Frá þessu er sagt á Vísi.

Fram kemur að blaðamaður Vísis hafi spurt Sóleyju hvort ekki hafi verið um saklausan brandara að ræða hjá borgarstjóra. „Brandari kannski en ég get ekki fallist á að hann sé saklaus. Svona brandari gerir ekkert annað en að normalísera klám. Húmor er beitt vopn eins og Jón Gnarr veit vel. Með þessum brandara, ef um brandara er að ræða, er Jón Gnarr að nota hann til að normalísera klámnotkun. Það er mjög alvarlegt og í beinni andstöðu við yfirlýsta stefnu borgarinnar í mannréttindamálum,“ svaraði Sóley.

Þá hefur Vísir eftir Sóleyju að henni finnist með öllu ólíðandi að borgarstjóri geri klámnotkun að gamanmáli. „Það er alveg skýrt í mannréttindastefnu borgarinnar að hún ætlar að beita sér gegn klámvæðingu og borgarstjóri þarf að vinna samkvæmt því. Það er líka alvarlegt þegar alþjóðasamfélagið fær þessi skilaboð frá borgarstjóra höfuðborgar jafnréttisríkisins Íslands.“

Sóley bendir á að margir af yngri kynslóðinni líta upp til Jóns Gnarr og taka viðhorf hans sér til fyrirmyndar. Hann hafi sett slæmt fordæmi með ummælum sínum.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar