Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gefur ríkisstjórninni aðeins nokkrar vikur til að ná árangri í atvinnumálum. Hann tekur vel í hugmynd Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um samstarf fyrrverandi stjórnarflokka, ef ekki verður viðsnúningur í atvinnumálum.
Þetta kom fram í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þingmennirnir voru gestir þáttarins og ræddu stjórnmálaástandið. Báðir voru þeir mjög óánægðir með ástand atvinnumála. Sigmundur Ernir kvað það aumkunarvert fyrir stjórnvöld að geta ekki útvegað fólkinu í landinu vinnu. Ekki væri nóg að undirbúa atvinnuskapandi verkefni sem kæmu til framkvæmda eftir marga mánuði; vinna yrði að vera í boði nú í haust.
Jón Gunnarsson gagnrýndi VG og taldi flokkinn vera „tappa“ í atvinnumálum.
