Altalað er í Alþingishúsinu að með inngöngu Þráins Bertelssonar í þingflokk VG hafi Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tryggt sér hvíslara þar, það er að hann leki í Össur upplýsingum um viðhorf manna í þingflokknum. Össur og Þráinn hafa lengi verið nánir vinir.
Þetta staðhæfir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík, í nýrri færslu á bloggsíðu sinni.
Vigdís skrifar: „Nú hefur vinur minn úr allsherjarnefnd Þráinn Bertelsson gengið til liðs við þingflokk Vinstri græna. hann hefur komið við í Framsóknarflokknum, Borgarahreyfingunni og nú Vg. Kemst hann þar með á spjöld sögunnar að hafa starfað í þremur flokkum. Þar eru fyriri á fleti t.d. Kristinn H. Gunnarsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og fl. sem ég man ekki í augnablikinu. Nú er það altalað í Alþingishúsinu að með þessu sé Össur búinn að tryggja sér hvíslara innan þinglokks Vinstri græna – en þeir Þráinn eru mestu mátar.“
