Miðvikudagur - 8.9 2010 - 09:47 - Ummæli ()

Þórður Friðjónsson: Ekki einleikið hversu mörg mál festast hjá ráðherrum

Meiri fagmennsku í stjórnmálin segir Þórður

Ekki er einleikið hversu mörg brýn og stór mál enda á borðum ráðherra okkar og festast þar til lengri eða skemmri tíma. Agaður markaðsbúskapur má ekki og getur ekki grundvallast af sérhagsmunum og duttlingum ráðamanna hverju sinni.

Þetta skrifar Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, í pistli í Fréttablaðinu í dag en þar ber hann saman Ísland og önnur Norðurlönd og kemst að þeirri niðurstöðu að hér eigum við töluvert eftir ólært. Til marks um það séu mikil pólitísk afskipti sem tíðum leiða til sérlausna af ýmsu tagi.

Magma er nærtækt dæmi sem og Helguvíkurverkefnið. Þá er afskaplega óheppilegt hversu það hefur dregist að aflétta þeirri óvissu sem sjávarútvegurinn býr við vegna endurskoðunar kvótakerfisins.

Agaður markaðsbúskapur getur ekki grundvallast á sérlausnum sem ráðast af duttlungum ráðamanna á hverjum tíma heldur byggist hann á skýrum og stöðugum leikreglum.

Orkugeirinn getur orðið aflvaki hagvaxtar á Íslandi á næstu árum, en þó ekki án aðkomu erlends fjármagns.  Hins vegar telja sumir að almenningur kunni ekki fótum sínum forráð í í fjárfestingum í fyrirtækjum. Fyrst eigi einhverjir snillingar, stórfjárfestar, að fá fyrirtækin og umbreyta þeim – og síðar megi hleypa almenningi að þegar verðmæti fyrirtækjanna hefur aukist. Þessu er gjarnan haldið fram í nafni umhyggjusemi fyrir almenningi. Þetta eru vægast sagt vafasöm rök, ekki síst úr röðum þeirra sem fyrir eru að höndla með fjármuni almennings. Hagsmunum almennings er ekki best borgið með slíkri forræðishyggju. Þvert á móti er honum þannig neitað um hlutdeild í ágóðanum sem fylgir endurreisn efnahagslífsins.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar