
Hér sést hvernig fjöldi áskrifenda hefur hríðfallið á einu ári, eða um þriðjung. Grafið sýnir síðustu tvö ár og sést hvernig það tekur dýfu fyrir ári.
Áskrifendum Morgunblaðsins hefur fækkað um þriðjung á aðeins einu ári, eða úr 35 prósentum landsmanna niður í 24 prósent.
Þetta má sjá í niðurstöðum könnunar á lestri dagblaða sem gerð er á þriggja mánaða fresti. Um er að ræða samfelldar mælingar á dagblaðalestri sem Capacent framkvæmir fyrir samstarfshóp um dagblaðamælingar sem í eru helstu dagblaðmiðlar, Samtök íslenskra auglýsingstofa og birtingaraðilar.
Fyrir utan könnun á lestri blaða er spurt hvort viðkomandi búi á heimili með áskrift að Morgunblaðinu. Í júlí í fyrra svöruðu 35 prósent þeirri spurningu játandi. Í október var hlutfallið komið niður í 32 prósent, en eftir það tók það mesta dýfu, eða niður í 27 prósent í janúar á þessu ári. Áskrifendur voru 26 prósent í apríl og svo fer áskrifendum enn fækkandi, þar sem þeir eru aðeins 24 prósent í júlí síðastliðnum.
Á einu ári hefur þeim sem búa á heimilum með áskrift að Morgunblaðinu því fækkað úr 35 prósentum í 24 prósent. Það þýðir að áskrifendum hefur fækkað um þriðjung, eða 32 prósent á aðeins einu ári.
Morgunblaðið býður einnig uppá helgaráskrift og voru 7 prósent með slíka áskrift í júlí í fyrra, en nú eru þeir 5 prósent. Í heildina hefur þeim sem hafa einhverja áskrift því fækkað úr 42 í 29 prósent. Þar er líka um að ræða fækkun uppá 32 prósent.
