
Tölum Hagstofu verður að taka með verulegur fyrirvara
Í raun og veru er ekki hægt að byggja neitt á opinberum tölum Hagstofu Íslands um hagvöxt og breytingar á landsframleiðslu sökum mikilla sveiflna milli birtinga þeirra talna. Þær séu svo miklar að vart sé neitt mark á þeim takandi.
Þetta er álit Greiningar Íslandsbanka sem færir rök fyrir máli sínu. Er þess þar getið að athygli hafi vakið í júní þegar fulltrúar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins töldu kreppuna hér á landi yfirstaðna og bentu á tölur Hagstofu um hagvöxt því til sönnunar.
Það segir hins vegar kolranga sögu því endurskoðaðar tölur Hagstofunnar sýna að á því tímabili sem fulltrúar AGS vísuðu til var í raun samdráttur en ekki hagvöxtur. Raunar sýni þær tölur strangt til tekið að samdráttur fari vaxandi sé mið tekið af tölum þessa árs. Kreppan sé því að dýpka en ekki öfugt.
Þá bendir greiningardeildin ennfremur á að Hagstofan er ekki fljótari en svo með tölur sínar að nú síðasta föstudag hafi loks birst endurskoðaðar tölur fyrir annan ársfjórðung árið 2008. Segir Hagstofan nú að þá hafi verið 0,8% samdráttur á þeim ársfjórðungi en þegar fyrstu tölur fyrir þann ársfjórðung voru birtar taldi stofnunin að þá hefði verið 4,9% hagvöxtur.
Greiningin í heild hér.
