Miðvikudagur - 8.9 2010 - 14:00 - Ummæli ()

Victoria Beckham (36): Allt hálfkák er gagnslaust

Fyrrum kryddpían Victoria Beckham segist setja alla sína orku í feril sinn sem tískudrottning.

Victoria hefur þegar átt farsælan feril í poppinu, er gift fótboltakappanum David Beckham og er núna að skapa sér nafn í tískuheiminum.

Hún viðurkennir að vera kannski ekki heimsins besti hönnuður en segist nota innsæi sitt til að meta hvernig fötum konur vilji klæðast.

Í viðtali við New York Times segist hún ekki gera neitt til hálfs:

Mér finnst hálfkák vera tilgangslaust. Ef þú ætlar að gera eitthvað þá skaltu gera það almenninlega, annars er enginn tilgangur með því.

Ég þykist ekki vera neinn sérlega góður klæðskeri. Ég bind utan um mig efni og bið svo aðstoðarmann um að festa það fyrir mig en lokaspurningin er alltaf -Myndi ég klæðast þessu?

Beckham flaug frá Los Angeles til New York í gær til að taka þátt í tískuviku sem hefst þar næsta þriðjudag.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar