
Salan á Sjóvá á lokastigi
Aðeins einn vænlegur kaupandi er eftir í þeim hópi fjárfesta sem sýndu því áhuga að kaupa tryggingafélagið Sjóvá en samkvæmt heimildum DV er salan á lokastigi. Er sá kaupandi hópur manna sem leiddur er af Heiðari Má Guðjónssyni. Íslandsbanki sér um söluna.
Ekkert er látið uppi um hugsanlegt söluverð þessa rótgróna fyrirtækis en kunnugir sem DV hefur rætt við telja ekki fráleitt að ætla að 2 til 5 milljarðar króna séu nærri lagi.
Slá má því föstu að íslenska ríkið fær því lítið sem ekkert til baka af þeim ellefu milljörðum króna sem lagt var félaginu til aðstoðar eftir að Karl Wernersson og félög hans höfðu gengið svo nærri því að við gjaldþroti lá.
