Viðskipti Fimmtudagur - 9.9 2010 - 08:15 - Ummæli ()

Aldrei keypt bíl á 21% vöxtum? En nákvæm- lega það gerðist

Breytilegir vextir þýða að lán getur farið í 21 prósent og hærra ef svo ber undir

Með því að taka lán bundið LIBOR vöxtum skuldbundu allir þeir sem slík lán tóku sig til að greiða breytilega vexti sama hverjir þeir yrðu á lánstímanum. Þess vegna er út í hött fyrir lögmann lántaka í vaxtamáli Lýsingar sem nú er fyrir dómstólum að halda því fram að viðkomandi hefði aldrei keypt bíl á 16 – 21 prósenta vöxtum.

Er þetta mat Erlends Magnússonar, sérfræðings, í greinarkorni í Morgunblaðinu en Erlendur hefur mikla reynslu og þekkingu úr bankaheiminum hér heima og erlendis.

Undrast hann málatilbúnað lögmanns lántakans því með samþykkt á láni á breytilegum vöxtum var lántakinn að samþykkja að greiða þá vexti sama hverjir þeir yrðu á samningstímanum.

Þegar menn taka lán sem bera LIBOR-vexti eða aðra millibankavexti, að viðbættu álagi, þá skuldbinda þeir sig til þess að greiða viðkomandi vexti sama hvernig sem millibankavextir þróast á lánstímanum. Það er aðeins álagið sem er fast í umsaminn tíma; millibankavextirnir breytast frá einu vaxtatímabili til annars. Hversu háir millibankavextirnir geta orðið á samningstímanum veit enginn fyrirfram.

Það er viðskiptaregla um heim allan þegar menn breyta höfuðstól láns sem ber millibankavexti úr einum gjaldmiðli í annan þá eru vextir ávallt reiknaðir miðað við millibankavexti nýs gjaldmiðils. Vextir í einum gjaldmiðli bera aldrei millibankavexti annars gjaldmiðils. Komist íslenskur dómstóll að niðurstöðu um að lán í íslenskum krónum skuli bera millibankavexti í öðrum gjaldmiðli, þá dæmir hann íslensk lög og íslenska dómstóla úr leik í öllum alþjóðaviðskiptum næstu áratugina.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar