
Yfirtekur þýski bankinn Actavis?
Eins og greint hefur verið frá í fréttum að undanförnu hefur þýski risabankinn Deutsche Bank sótt um leyfi til framkvæmdanefndar Evrópusambandsins til að yfirtaka Actavis. Fari svo að Deutsche Bank fái þetta leyfi, sem allt bendir til, gæti það létt töluvert á erlendri skuldastöðu íslenska þjóðarbúsins.
Vísir fjallar um málið en erlendar skuldir þjóðarbúsins nema nú rétt rúmum 3.000 milljörðum króna ef frá eru taldir bankarnir sem eru í slitameðferð.
Áður hefur komið fram í fréttum að skuldir Actavis næmu 1.000 milljörðum króna af erlendum skuldum þjóðarbúsins. Sú tala er nú komin niður í rúma 800 milljarða vegna gengisþróunar.
Seðlabanki Íslands vill þó ekki gefa upp hversu hátt mat Actavis er sem hlutfall af erlendum eignum þjóðarbúsins en samkvæmt fréttum Reuters í vetur var Actavis þá metið á um rúmlega 500 milljarða króna. Með yfirtöku Deutsche Bank myndi erlenda skuldastaðan því batna um 300 milljarða króna eða 10% af heildinni.
Erlendar eignir þjóðarbúsins nema tæpum 2.500 milljörðum kr. og þær myndu lækka niður í tæpa 2.000 milljarða kr. við slíka yfirtöku.
