
Lítið eftir af yfirstandandi haustþingi
Aðeins fimm vinnudagar eru eftir þar til yfirstandandi löggjafarþingi verður slitið en dagarnir fram að því munu að miklu leyti fara í að ræða niðurstöður þingmannanefndarinnar svokölluðu sem taka á afstöðu til ábyrgðar ráðherra á bankahruninu. Ljóst er að fjölmiðlalögin umdeildu verða ekki að lögum á þessu þingi.
Skýrsla þingmannanefndarinnar þykir líkleg nú á laugardaginn kemur en sú nefnd átti að ljúka störfum þann 1. september upphaflega.
Að því máli frátöldu segir Morgunblaðið frá því að formenn þingflokkanna hafi náð samkomulagi um flest þingmál sem útaf standa nú nema fjölmiðlafrumvarpið. Er þar um að ræða lög um hópmálsóknir sem þegar hafa verið samþykkt og síðustu umræður eftir um útlendingalög og iðnaðarmálagjald.
