Fimmtudagur - 9.9 2010 - 09:15 - Ummæli ()

Gætu þurft að greiða ríkinu til baka vegna kaupa á eigum peningamarkaðssjóða

Rétt að öllu staðið?

Allir þeir sem högnuðust á kaupum á eignum peningamarkaðssjóða gömlu bankanna, þar með taldir nýju bankarnir, gætu þurft að greiða ríkinu til baka þá fjárhæð sem varið var til kaupanna að mati forseta Eftirlitsstofnunar EFTA.

Fréttablaðið ræddi við Per Sanderud, forseta Eftirlitsstofnunarinnar, sem slær því föstu að viðskiptavinir sjóðanna, þeir sem fé lögðu í þá, þurfi engar áhyggjur að hafa og ekki greiða neitt. Sem kunnugt er hefur stofnunin ákveðið að hefja formlega rannsókn á kaupum nýju bankanna á peningamarkaðsbréfum gömlu bankanna. Skoðar stofnunar sérstaklega hvort kaupin hafi falið í sér ríkisaðstoð eins lög EES lögin skilgreina það.

Stjórnvöld beindu þeim tilmælum til nýja bankanna gegnum Fjármálareftirlitið að slíta sjóðunum og greiða sjóðsfélögum út. Keyptu bankarnir eigur sjóðanna í kjölfarið en stór hluti þeirra hefur þegar verið afskrifaður. Hafa athugasemdir verið gerðar við að ekki var gert tilboð í alla slíka sjóði og því sátu allir ekki við sama borð.

Stjórnvöld neita því að hafa gefið umrædd fyrirmæli um kaupin en niðurstaða Eftirlitsstofnunar EFTA liggur fyrir á næsta ári.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar