
Fer Geir fyrir Landsdóm?
Heimildir herma að þingmannanefnd sú sem Alþingi skipaði til að fara yfir rannsóknarskýrslu Alþingis stefni að því að gera grein fyrir störfum sínum nú um helgina. Er meirihluti í nefndinni til að kalla saman Landsdóm til að fjalla ítarlega um ábyrgð þeirra Geirs H. Haarde, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, Björgvins Guðmundssonar og Árna M. Mathiesonar.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir þessu en líklegast er að nefndin tilkynni næstu skref á laugardaginn kemur. Segja sömu heimildir að ágreiningur hafi verið uppi innan Samfylkingarinnar um hvort birta bæri tveimur eða fjórum fyrrverandi ráðherrum ákæru og þau átök hafi á fundi í gær leitt til þess að enn sé ekki komin endanleg niðurstaða í málið.
