Fimmtudagur - 9.9 2010 - 09:50 - Ummæli ()

Guðbjartur og Ögmundur vilja fleiri aðstoðarmenn sér til halds og trausts

Vill fleiri aðstoðarmenn

Nýjustu ráðherrar stjórnarinnar, þeir Ögmundur Jónasson og Guðbjartur Hannesson, hafa farið þess á leit að fá að fjölga aðstoðarmönnum sínum. Gangi það eftir verða þeir með tvo slíka en hefðin er að ráðherrar hafi aðeins einn aðstoðarmann hverju sinni

Greinir Viðskiptablaðið frá þessu en sem kunnugt er tók Ögmundur við dóms- og mannréttindaráðuneytinu og samgönguráðuneyti meðan Guðbjartur tók við félags-, trygginga- og heilbrigðisráðuneytinu fyrir stuttu.

Hefur reyndar hlutverk beggja aukist enda í raun að taka við tveimur ráðuneytum. Er þeim þó ætlað í viðbót við allt annað að skipuleggja sameiningu ráðuneyta sinna í tvö ný; innanríkis- og velferðarráðuneyti.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar