Tveir fulltrúar borgarráðs vildu ræða klámskoðun borgarstjóra í morgun
Þau ummæli Jóns Gnarr, borgarstjóra Reykjavíkur, að hann skoða aðallega klámsíður á netinu hafa komið illa við fleiri en Sóley Tómasdóttur. Þetta hafa gagnrýnt Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrum borgarstjóri, Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs borgarinnar og nú síðast Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður forsætisráðherra.
Skrifar Vísir um að Hrannar geri harðar athugasemdir við ummæli Jóns á facebook síðu sinni og skrifar að sjaldgæft sé að hann sé sammála þeim Sóleyju og Hönnu Birnu um nokkurn hlut. Að þessu sinni sé sú stund þó runnin upp.
Björk Vilhelmsdóttir gerir ummælin einnig að umtalsefni. „Klám er gróft ofbeldi. Skil því ekki afhverju borgarstjóri var að segja þetta, þar sem hann er einlægur talsmaður gegn ofbeldi. Mannréttindastefna Reykjavíkurborgar hafnar klámi.“
