Lady Gaga vildi gefa vinkonu sinni Beyonce eitthvað sérstakt í afmælisgjöf og því varð demantasvipa fyrir valinu.
Þær stöllur kynntust þegar þær unnu saman að laginu Telephone og tókst með þeim góður vinskapur. Að sögn breska blaðisins Sun á Gaga að hafa gefið Beyonce svipuna baksviðs eftir að sú síðarnefnda tróð upp með Eminem í Detroit í síðustu vijku.
Að sögn heimildarmanns vildi Gaga gefa henni ‘eitthvað sérstakt’ en svipan var gerð úr hundruðum demanta og leðri. Þegar Beyonce opnaði pakkann skrækti hún af kæti. Búningsherbergið hennar hafði verið skreytt með blöðrum og borðum í tilefni dagsins og allt flaut í kampavíni.
Oh, þessar stjörnur!

