Fimmtudagur - 9.9 2010 - 07:18 - Ummæli ()

Lög um hópmálsóknir loks samþykkt á Alþingi

Hópmálsóknir eru nú loks mögulegar hér á landi

Alþingi samþykkti loks í gær lög um hópmálsóknir og tóku þau þegar gildi. Hefur það í för með sér að allir þeir sem telja sig eiga sams konar kröfur á aðila fyrir dómi vegna sama tilefni geta nú rekið málið í sameiningu og dreift kostnaðinum. Allir viðstaddir þingmenn greiddu frumvarpinu atkvæði sitt.

Fréttablaðið fjallar um þetta en hugmyndir um hópmálsóknir hafa lengi verið í deiglunni hér án þess þó að slík lög væru samþykkt.

Segir í greinargerð með frumvarpinu að lögunum sé ætlað að greiða fyrir aðgangi að dómstólum. Úrræðið er einkum fyrir þau tilvik þegar fjöldi manna telur sig eiga fjárkröfur af sama tilefni en krafa hvers og eins er svo lág að það myndi ekki svara kostnaði fyrir hvern og einn að höfða sérstakt dómsmál.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar