Fimmtudagur - 9.9 2010 - 10:15 - Ummæli ()

Ofurmjó Angelina Jolie vekur athygli á vandanum í Pakistan

Angelina Jolie er talin með fegurustu konum heims en upp á það síðasta hefur hún verið óeðlilega mjó.

Angelina, sem er 35 ára, átti fund með forsætisráðherra Pakistans í gær. Hún klæddist víðum fötum eins og oft vill vera með konur haldnar átröskun en gerði lítið til að fela beinabera handleggina þegar hún tók í höndina á Yousaf Raza Gillani þegar hún hitti forsætisráðherrann á heimili hans í Islamabad.

Jolie er stödd í Pakistan sem fulltrúi Sameinuðu Þjóðanna en hún hefur lengi starfað sem sendiherra þeirra. Tilgangurinn með ferðinni er að vekja athygli á þeim vanda sem pakistanar glíma nú við en skaðinn af völdum flóðanna er einn sá alvarlegasti í Pakistan á liðnum árum.

Meira en 1500 pakistanar hafa látið lífið og um 20 milljónir hafa misst heimili sín eða glíma við alvarlega sjúkdóma. Uppskera er víða brostin og fjölskyldur eru aðskilnar.

Hin tággranna Angelina segist hrærð vegna ástandsins og vonast til að geta gert eitthvað til að beina athygli heimsbyggðarinnar til Pakistan.

Þetta er heilsufarsleg, efnahagsleg og félagsleg katastrófa


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar