eyjan.is

Viðskipti Miðvikudagur 15.09.2010 - 15:07 - Ummæli ()

Jón Gnarr kom Kínverjum í opna skjöldu með andófi sínu – Lesið bréfið hér

Jón Gnarr tekur undir með ýmsum mannréttindasamtökum sem krefjast þess að Liu Xiaobo verði umsvifalaust látinn laus.

Sendinefnd Kínverja hjá Jóni Gnarr, borgarstjóra, fór undan í flæmingi þegar Jón afhenti þeim bréf til stuðnings kínverska skáldinu Liu Xiaobo á fundi í ráðhúsinu í gær. Þar krefst Jón þess að rithöfundurinn verði sleppt úr fangelsi.

Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi Besta flokksins, segir að fundur borgaryfirvalda með Liu Qi, formanni Kommúnistaflokksins í Beijing, hafi verið mjög jákvæður og vinalegur og að skiptst hafi verið á ýmsum upplýsingum. Undir lok fundarins dró Jón Gnarr síðan upp bréf og afhendti Kínverjunum, en í því styður borgarstjórinn baráttu samtakanna International Pen fyrir því að kínversk stjórnvöld láti Liu Xiaobo lausan.

Uppi varð fótur og fit í borgarráðsherberginu þegar þetta gerðist og vissu erlendu gestirnir varla hvernig þeir áttu að taka við þessu. Karl segist ekki vita hvort þeir hafi móðgast eða einfaldlega ekki vitað hvernig þeir ættu að bregðast við.

Í bréfi borgarstjóra segir hann kínversk stjórnvöld brjóta alþjóðlega mannréttindasáttmála með því að halda rithöfundinum á bakvið lás og slá, en hann var í fyrra dæmdur til 11 ára fangelsisvistar fyrir kröfur sínar um mannréttindi í Kína. Borgarstjóri krefst þess að skáldið verði látið laust þegar í stað, sem og allir aðrir sem Kínverjar hafa hneppt í varðhald með sambærilegum hætti.

Bréf Jóns Gnarr er svohljóðandi:


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is