Könnun: Meirihluti almennings fylgjandi málshöfðun gegn fyrrum ráðherrum
Yfir 60% svarenda sögðust fylgjandi því að höfða beri sakamál fyrir landsdómi gegn fyrrverandi ráðherrunum Árna M. Matthiesen (66,3%), Geir H. Haarde (64,2%) og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur (60,4%). Nokkuð færri eða 51,8% sögðust fylgjandi því að höfða beri sakamál fyrir landsdómi gegn Björgvin G. Sigurðssyni fyrrverandi viðskiptaráðherra.
Þetta er niðurstaða könnunar MMR sem birt var í dag.
Verulegur munur mældist á afstöðu svarenda eftir stuðningi þeirra við stjórnmálaflokka. Þannig voru rétt um þriðjungur sjálfstæðismanna sem sögðust hlynntir málshöfðun gegn einhverjum ráðherranna. Þá voru um 60% stuðningsmanna Samfylkingarinnar fylgjandi málshöfðun gegn Árna M. Matthiesen og Geir H. Haarde en undir 40% þeirra sögðust fylgjandi málshöfðun gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Björgvin G. Sigurðssyni. Þá var meirihluti Vinstri-grænna og framsóknarmanna fylgjandi málshöfðun gegn öllum fyrrverandi ráðherrunum fjórum (á bilinu 63%-81% stuðningsmanna Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins sögðust hlynntir málshöfðun). Þá voru 79% til 93% þeirra sem kváðust styðja aðra stjórnmálaflokka vera fylgjandi málshöfðun gegn ráðherrunum.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
