Stór meirihluti vill afturköllun fiskveiði- heimilda samkvæmt nýrri könnun

Þingmenn hlynntir samningaleið en kjósendur vilja afturköllun
Ný könnun sýnir að rúmlega 70 prósent aðspurða vilja að stjórnvöld afturkalli fiskveiðiheimildir útgerða og úthluti þeim aftur með breyttum reglum. Er það í stíl við tilboðsleiðina svokölluðu sem rædd hefur verið meðal þingnefndar um málið en þeirri nefnd leist mun betur á samningaleið.
Könnun þessa framkvæmdi MMR nú um miðjan mánuð og tóku 854 einstaklingar þátt. Verulegur munur er á afstöðu svarenda eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Þannig eru stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins mest á móti afturköllun en kjósendur Vinstri grænna harðastir í afturköllun. Það vilja líka meirihlutar stuðningsmanna Samfylkingar og Framsóknar.
Reyndust allir aldurshópar því hlynntir að stjórnvöld afturkalli heimildirnar en mestur stuðningur við slíkt meðal þeirra elstu.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
