Krafa um uppstokkun: Sjö af hverjum tíu vilja ný framboð til Alþingis
Sjö af hverjum tíu landsmönnum telja frekar mikla eða mjög mikla þörf fyrir ný framboð til Alþingis, samkvæmt nýrri könnun MMR.
Á hinn bóginn segja tæp 18 prósent svarenda í könnuninni að lítil þörf sé fyrir ný framboð og tæp 12 prósent eru á báðum áttum.
Landsmenn virðast nokkuð sammála um þetta, burtséð frá aldri, kyn eða búsetu. Þó má greina heldur meira fylgi við ný framboð hjá yngra fólki, hjá þeim tekjulægstu og hjá fólki á höfuðborgarsvæðinu.
Spurt var: Hversu mikil eða lítil þörf telur þú að sé fyrir ný framboð til Alþingis (til viðbótar eða í staðinn fyrir núverandi stjórnmálaflokka)? Svarmöguleikar voru: Mjög lítil þörf, frekar lítil þörf, hvorki mikil né lítil þörf, frekar mikil þörf, mjög mikil þörf og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 93 prósent afstöðu til spurningarinnar (aðrir svöruðu „Veit ekki/vil ekki svara“).
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
