Verjandi níu- menninganna telur gögnum hafa verið haldið frá sér

Dómsmáli gegn níumenningunum framhaldið
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður hluta þeirra níu einstaklinga sem ákærðir eru fyrir að ráðast að Alþingi Íslendinga telur margt benda til þess að saksóknari haldi gögnum frá verjendum í málinu. Þessu vísar saksóknari í málinu á bug. Fyrirtaka var í málinu í morgun.
Taldi Ragnar fyrir dóminum ástæðu til að halda að hann hefði ekki fengið gögn meðal annars úr nýjum eftirlitsmyndavélum í þinghúsinu og vitnisburð aðila við Alþingishúsið þegar níumenningarnir fóru inn í hús Alþingis.
Lára V. Júlíusdóttir, saksóknari, sagði verjanda hafa fengið öll gögnin nema ef vera skyldi eitt bréf sem ákæruvaldið sendi héraðsdómi í september en því fylgdi óundirritað og ódagsett bréf sem hafi verið fylgiskjal við eitt plagga í málinu en orðið viðskila við það. Hafi nú verið bætt úr því.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
