Naumur meirihluti vill áframhaldandi ríkisstjórnarmynstur

Naumur meirihluti aðspurðra vill núverandi stjórnarmynstur áfram
Rétt rúmur helmingur aðspurðra segir æskilegt að núverandi stjórnarflokkar komi áfram að ríkisstjórn samkvæmt nýrri skoðanakönnun.Litlu færri vilja þó að aðrir flokkar komi að ríkisstjórn eða tekin verði upp þjóðstjórn.
Eru þetta niðurstöður nýrrar könnunar MMR sem kannaði afstöðu almennings til ríkisstjórnarinnar og hvaða aðrir kostir væru í stöðunni.
50,3 prósent telja stjórn með aðkomu núverandi stjórnarflokka besta kostinn í stöðunni meðan 49,7 prósent vilja aðra flokka í ríkisstjórn. Þriðjungur aðspurðra vilja utanþingsstjórn.
Nokkur munur var á afstöðu fólks eftir flokksskírteini. Afgerandi hluti stuðningsfólks stjórnarflokkanna, 63%-68%, taldi ákjósanlegast að stjórnarflokkarnir sætu áfram. Ekki nema 1-2% stuðningsfólks Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks töldu það góðan kost. Þá vildi stuðningsfólk Hreyfingarinnar sem og þeir sem myndu kjósa aðra flokka, skila auðu eða voru óákveðnir það sammerkt að aðhyllast utanþingsstjórn umfram aðra kosti.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
