25% fleiri kjósendur með lögheimili erlendis. Meirihluti ætlar að kjósa
Kjósendum með lögheimili erlendis hefur fjölgað um tæp 25 prósent frá síðustu alþingiskosningum og eru nú rúmlega 12.300 talsins, eða rúmlega 5 prósent þeirra sem hafa kosningarétt til stjórnlagaþings. Rúmlega 230 þúsund eru á kjörskrá, en skoðanakönnun MMR sýnir að 55 prósent ætla að greiða atkvæði í kosningunum.
Þetta kemur fram á Þjóðskrá vegna kosninganna til stjórnlagaþings.
Þá hefur kjósendum fjölgað um 2 prósent frá því í síðustu alþingiskosningum, eða um rúmlega 4.500. Nálægt 7.500 manns fá nú að kjósa í fyrsta sinn.
Samkvæmt könnun sem MMR gerði á dögunum og greint var frá á RÚV hafa 34 prósent kjósenda ekki ákveðið hvort þau hyggist kjósa eða ekki, 11% ætla ekki að kjósa og tæp 55 prósent ætla að greiða atkvæði í kosningunum. Þá sögðu rúmlega 57 prósent aðspurðra ekki hafa kynnt sér neinn þeirra einstaklinga sem hafa boðið sig fram til stjórnlagaþings.
Upplýsingar um frambjóðendur má finna á kosningavef dómsmálaráðuneytis vegna stjórnlagaþings.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
