Jón Bjarnason æfur vegna gagnrýni á ráðningu sonar hans

Reiður Jón á Alþingi í dag
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, var æfur í ræðustól Alþingis í dag eftir að Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, gagnrýndi ráðningu sonar Jóns til að fara yfir fiskveiðistjórnunarmál. Barði ráðherra í ræðupúltið þegar hann svaraði því til að sonur sinn væri virtur líffræðingur.
Greinir Mbl.is frá þessu en Ásbjörn setti spurningarmerki við að sonur Jóns, Bjarni, hefði opinberlega lýst afdráttarlausri skoðun sinni á dragnótaveiðum. Það hlyti að hafa áhrif á störf hans fyrir ríkisvaldið.
Bjarni er sem kunnugt er sviðsstjóri hjá Veiðimálastofnun en sú heyrir undir ráðuneyti föður hans. Greint var frá því í vor að Bjarni þessi hefði hlotið verulega ríkisstyrki í nafni einkahlutafélags síns.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
