Boðað til mótmæla á þingpöllum í dag til stuðnings níumenningunum
Boðað hefur verið til mótmæla á þingpöllum Alþingis klukkan 14:30 í dag til stuðnings níumenningunum svokölluðu, en í dag eru tvö ár frá því hópur fólks mótmælti hástöfum í þinghúsinu með þeim afleiðingum og fjöldi fólks var handtekinn.
Á Facebook má finna a.m.k. tvo hópa sem boða til fjöldamótmæla og hvetja aðra til að sýna samstöðu með þeim níu manna hópi, sem ákærður var vegna meintrar þátttöku í mótmælunum fyrir tveimur árum. Á annarri síðunni má lesa eftirfarandi stuðningsyfirlýsingu:
„Næstkomandi miðvikudag, þann 8. desember, verða liðin tvö ár frá því að hópur fólks heimsótti Alþingi, með það fyrir augum að halda upp á þingpalla og lesa yfirlýsingu fyrir þingheim. Eins kunnugt er eru afleiðingarnar m.a þær að níu manneskjur úr þessum u.þ.b þrjátíu manna hópi hafa verið ákærðar á grundvelli 100. greinar hegningarlaganna, sem lýtur að árásum á sjálfræði Alþingis, og eiga nú yfir höfði sér þunga fangelsisdóma. …Það er ekki ofmælt að kalla ákærurnar pólitískar ofsóknir og við þeim hefur verið brugðist á ýmsan hátt. Meðal annars fór af stað undirskriftalisti þar sem við og rúmlega sjöhundruð aðrir, skrifuðum undir „samsekt“ okkar og kröfðumst þess að vera ákærð ásamt nímenningunum. Listinn var svo afhentur Ástu Ragnheiði forseta Alþingis í sumar, og hefur ekki spurst til hans síðan.
Við sem undir þetta bréf ritum myndum, ásamt fleirum, n.k óformlegan stuðningsmannahóp við nímenningana, og höfum á prjónunum að boða til samstöðuaðgerða með þeim, nú þegar tvö ár eru liðin frá inngöngunni, og styttist í að aðalmálsmeðferðin hefjist loks.
Þann 8.desember næstkomandi verður blásið til samstöðuaðgerðar í Alþingi við Austurvöll. Þennan dag, kl.14:30, fyllum við þingpallana og nýtum stjórnarskrárbundinn rétt til viðveru á Alþingi, sýnum að við sættum okkur ekki við ávirðingarnar sem nímenningarnir eru bornir. Mætum öll og gefum skýr skilaboð, níu manneskjur geta ekki tekið skellin fyrir heila hreyfingu. Styðjum nímenningana, þau eru níu af okkur.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

