eyjan.is

Miðvikudagur 22.12.2010 - 16:45 - Ummæli ()

Enn töluverð hamingja hjá Íslendingum. Sátt við veður, vinnu og nágrannana

Tíðin virðist fara vel í landann

Hin íslenska þjóð virðist almennt vera mjög ánægð ef marka má niðurstöður nýjustu könnunarinna í þá veru. Þar eru 93,4 prósent aðspurðra afar ánægðir með nágranna sína, rúm 90 prósent segjast ánægð með vinnuna sína og tæpum 86 prósentum finnst veðrið hafa verið aldeilis ágætt að undanförnu.

Forvitnaðist MMR, Markaðs- og miðlarannsóknir, um hug fólks til fyrrnefndra þátta og kemur í ljós almenn hamingja með þessa þrjá hluti.

Vekur athygli að svörin eru mikið til þau sömu og í sams konar könnun í ágúst Þá sögðust 94,7 prósent ánægð með veðrið, 92,9 prósent ánægð með nágranna sína og 91,4 prósent með vinnuna sína.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is