eyjan.is

Þriðjudagur 18.01.2011 - 19:27 - Ummæli ()

Mikill meirihluti landsmanna styður staðgöngumæðrun

Mikill meirihluti landsmanna er fylgjandi því að staðgöngumæðrun verði gerð lögleg á Íslandi, eða tæp 87%.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.

Þá er stuðningur við staðgöngumæðrun um eða yfir 80% óháð bakgrunnsbreytum, svo sem stuðningi við stjórnmálaflokka, tekjum og búsetu, kyni eða aldri.

Könnunin var framkvæmd dagana 11.-14. janúar 2011 og var heildarfjöldi svarenda 890 einstaklingar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is