eyjan.is

Þriðjudagur 25.01.2011 - 13:46 - Ummæli ()

Könnun: Helmingur aðspurðra vilja aftur kjósa um Icesave samninginn

Kjósa aftur um Icesave?

Helmingur aðspurðra vilja að Íslendingar fái aftur að kjósa um Icesave samning þann er nú liggur fyrir eins og þann fyrri sem hafnað var í fyrra. Eru þetta niðurstöður könnunar MMR.

Var sú gerð dagana 11. til 14. janúar eftir að ljóst varð að nýr samningur er verulega mikið betri en sá eldri sem stjórnvöld vildu á sínum tíma samþykkja en forseti Íslands kom í veg fyrir. 890 manns tóku þátt í könnuninni.

Í morgun kynnti Fréttablaðið niðurstöður úr könnun sem gaf til kynna að rúmur helmingur landsmanna vill samþykkja nýtt Icesave-samkomulag.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is