InDefence á móti nýjum Icesave-samningum
„Undanfarna daga og vikur hafa fjölmiðlar og stjórnmálamenn slegið því fram að InDefence hópurinn hafi jákvæða afstöðu gagnvart Icesave III samningunum. Það er rangt.“ segir í tilkynningu frá InDefence hópnum.
Segist hópurinn hafa skilað umsögn um samninginn til fjárlaganefndar og allra þingmanna, þar sem ítarlega sé fjallað um þá miklu fjárhagslegu áhættu sem núverandi samningar fela í sér fyrir Íslendinga. Í umsögninni sé lögð rík áhersla á að til að samningarnir geti talist ásættanlegir sé nauðsynlegt að draga úr þessari áhættu. Ennfremur segir:
Þegar útgreiðslur úr þrotabúi Landsbankans hefjast verður að tryggja að Íslendingar njóti aukins forgangs. Með þeirri breytingu að jafnstöðusamningar (Pari Passu) milli aðila yrðu felldir úr gildi yrði áhættu núverandi og komandi kynslóða Íslendinga mætt að verulegu leyti.
Í umsögninni segir orðrétt: „Þetta á að vera krafa íslenskra stjórnvalda ef gera á samning án þess að skorið sé úr um lögmæti greiðsluskyldunnar.“ Í samræmi við þessa umsögn, ráðlagði InDefence fjárlaganefnd Alþingis að sameinast um eina breytingartillögu sem hefði minnkað fjárhagslega áhættu þjóðarinnar og skapað meiri frið um Icesave samkomulagið.
Afstaða InDefence hópsins hefur verið skýr og hin sama frá upphafi málsins:
Grundvallaratriði er að samningar um Icesave málið endurspegli þrjú meginatriði:1. Að ekki sé lögbundin greiðsluskylda að baki kröfum Breta og Hollendinga.
2. Að samningar feli í sér skipta ábyrgð allra samningsaðila.
3. Að samningar feli í sér skipta áhættu allra samningsaðila.Að mati InDefence hópsins endurspegla núverandi samningar ekki þessa þætti með fullnægjandi hætti.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
