ISNIC, endursöluaðili íslenskra léna, spáir því að skráð .is lén verði um 42 þúsund árið 2012 og um 64 þúsund árið 2014.
Viðskiptablaðið fjallar um málið í dag.
Lén með .is endingu eru í dag rúmlega 32 þúsund talsins.
ISNIC hefur frá upphafi séð um rekstur landslénsins .is. Ekki er hægt að skrá lén með slíkri endingu nema í gegnum ISNIC.
Viðskiptablaðið greindi frá því í síðustu viku að ISNIC velti 206 milljónum króna á árinu 2010 og að heildarhagnaður félagsins var 133,5 milljónir króna í fyrra. Þar af námu tekjur vegna landslénsins um 170 milljónum króna, eða 80% af heildarveltu félagsins.
