eyjan.is

Föstudagur 11.02.2011 - 12:50 - Ummæli ()

Sameining skóla í borginni sögð mesta bakslag í menntamálum í landinu

Leynd virðist hvíla yfir nákvæmum sparnaði þess að sameina leikskóla

Þær sameiningarhugmyndir borgaryfirvalda á leik- og grunnskólum sem kynntar hafa verið er eitthvað mesta bakslag í menntamálum landsins nokkru sinni að mati foreldra leikskólabarna sem funduðu í gærkvöldi. Hafna foreldrarnir því sem þau kalla vanhugsaðar flýtiaðgerðir og flumbrugangur.

Kvarta foreldrarnir yfir að ekki hafi verið haft meira samráð við foreldrasamtök en raun ber vitni og gagnrýna sérstaklega að sameiningarhugmyndir sem á borði eru hafa ekki verið kynntar sem skyldi. Þá virðist enginn geta sýnt nákvæmlega fram á þá hagræðingu sem af sameiningu skóla hlýst.

Að sama skapi segir í tilkynningu frá foreldrunum að allir séu reiðubúnir til raunverulegs og faglegs samstarfs um málið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is