Almenningur ber mest traust til Landhelgis- gæslunnar – minnst til Hæstaréttar
Vantraust almennings til Hæstaréttar eykst talsvert í nýrri könnun MMR um traust almennings á helstu stofnunum á sviði réttarfars og dómsmála. 35% þáttakaenda segjast bera lítið eða mjög lítið traust til Hæstaréttar nú miðað við 29,1% í október 2010.
Af þeim stofnunum sem spurt var um nýtur Landhelgisgæslan (81%), Sérstakur saksóknari (60%) og Ríkislögreglustjóri (55%) mest traust meðal almennings.
Athygli vekur að traust til sérstaks saksóknara fer vaxandi, en hann mælist með 60% traust núna samanborið við 55% í október 2010 og 53% í október 2009. Þá fjölgar í hópi þeirra sem segjast bera mikið traust til Dómsmálaráðaneytisins, fer úr 25% í október 2010 í 30% í febrúar 2011. Héraðsdómstólarnir njóta trausts 39% svarenda og 38% sögðust bera mikið traust til ríkissaksóknara. Þá sögðust 33% bera mikið traust til dómskerfisins í heild og 22% kváðust bera mikið traust til Útlendingastofnunar.
Spurt var: Hversu mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila. Svarmöguleikar voru: Mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara. Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust. Samtals tóku 93,3% afstöðu til spurningarinnar.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is


