Sendir Persónuvernd erindi vegna kjósum.is. Lénið í eigu stjórnmálaflokks
Stjórnmálaflokkurinn Samtök fullveldissinna er eigandi lénsins kjosum.is, þar sem nú fer fram undirskriftasöfnun. Arnar Guðmundsson blaðamaður hefur sent Persónuvernd ítarlegt erindi þar sem hann lýsir m.a. áhyggjum af meðferð á kennitölum, möguleikum einstaklinga til að ganga úr skugga um hvort nöfn þeirra séu á undirskriftalistanum og þeirri staðreynd að lénið, þar sem kennitölunum er safnað, er á ábyrgð skráðra stjórnmálasamtaka.
Samtök fullveldissinna hugðust bjóða fram til alþingis í síðustu kosningum, m.a. undir forystu Bjarna Harðarsonar, en af þeim áformum varð ekki.
Bréf Arnars er svohljóðandi:
„Vefsvæðin kjósum.is og kjosum.is eru skráð á ábyrgð skráðrar stjórnmálahreyfingar sem heitir Samtök fullveldissinna. Þar er fólk hvatt til að skrá nöfn og kennitölur til stuðnings málstað sem samtökin halda á lofti.
Ég hef fengið staðfestingu á því frá vefstjóra að meðferð þeirra gagna sem þarna safnast saman eru á formlegri ábyrgð þessa stjórnmálaflokks.
Þótt fullt tilefni sé til að gera athugasemdir við þá staðreynd að hinn formlega ábyrgi aðili er hvergi nefndur á vefnum heldur vísað til nokkurra einstaklinga er það ekki meginefni þessa erindis.
Vandi málsins er sá að hvorki ég né nokkur annar hefur tækifæri til að sannreyna hvort kennitala mín eða nafn hefur verið lögð við þennan málstað að mér forspurðum.
Uppsetning þessarar kennitölusöfnunar er með þeim hætti að ekki þarf að gefa upp netfang til að staðfesta skráningu. Þá eru engar undirskriftir sjáanlegar, aðeins teljari. Aðeins umsjónarmenn kennitölusöfnunarinnar hafa aðgang að gögnunum og geta sannreynt hverjir hafa þegar verið skráðir. Á vefnum kemur fram að ekki stendur til að birta neinar upplýsingar um þau gögn sem eru að baki teljaranum heldur verði þau öll afhent forsetaembættinu til stuðnings tiltekinni kröfu.
Hér að neðan eru samskipti mín við vefstjóra þar sem fram kemur að ég verði að senda honum kennitölu mína, „kurteislega“, og bíða svo svars frá honum. Efni þess svars get ég ekki sannreynt nema með því að skrá mig og kanna hvort kennitala hefur þegar verið skráð. En þá hef ég sjálfur skráð mig og get með engu móti fylgst með því að nafn mitt verði fjarlægt.
Hér er því í reynd búið að setja upp einskonar „svartan kassa“ sem að sögn hinnar ábyrgu stjórnmálahreyfingar inniheldur tugi þúsunda kennitalna einstaklinga. Og þennan kassa á að afhenda óbirtan til stuðnings pólitískri kröfu. Í lýðræðissamfélagi er þessi framkoma einfaldlega ólíðandi.
Einhverjir hafa orðið til þess að bera saman hraðann í þessari kennitölusöfnun og undirskriftasöfnun Indefencehópsins um sama efni fyrir rúmu ári síðan. Sú söfnun stóð yfir frá því í nóvember og fram í janúar á tímum þegar allt samfélagið logaði af deilum um málið, þingmeirihluti var afar naumur og mikið auglýst í langan tíma. Nú eru liðnir rúmir tveir sólarhringar frá því þessi kennitölusöfnun var kynnt opinberlega á blaðamannafundi og uppgefinn fjöldi kennitalna slagar hátt í þann fjölda sem Indefence safnaði á mörgum vikum. Einnig hefur verið bent á að fjölgunin er ótrúlega jöfn og þétt, jafnvel á þeim tíma sólarhrings þegar netnotkun er í algeru lágmarki. Uppsetning á vefnum býður líka upp á einfalda rafrænu keyrslu upplýsinga inn í grunninn. En ekkert af þessu er hægt að sannreyna með nokkrum hætti.
Sem þátttakandi í þessu lýðræðissamfélagi spyr ég um rétt minn gagnvart því að búið sé að koma upp gagnabanka tugþúsunda gildra kennitalna sem afhenda á óbirtan til stuðnings tilteknum pólitískum málstað án þess að ég hafi nokkurn möguleika á að sannreyna sjálfur hvort mitt nafn er lagt við þetta að mér forspurðum.
Enn hef ég ekkert svar fengið frá vefstjóra við fyrirspurn minni um mína kennitölu enda gerði hinn nafnlausi vefstjóri ríka fyrirvara við að hægt væri að verða við slíku. Enda veit ég í raun ekki hversu miklu nær ég er þótt ég hefði tölvupóst frá viðkomandi nafnleysingja í höndunum.
Það hlýtur að vekja sérstaka athygli að á sjálfum vefnum er sérstaklega vísað til persónuverndarsjónarmiða sem rökstuðning fyrir því að þessi kennitölusöfnun fer fram undir algerri leynd.
Spurning mín er hvort Persónuvernd hyggist skoða þessa framkvæmd.
Kveðja
Arnar Guðmundsson“
Tölvupóstsamskiptin, sem Arnar vísar til, eru svohljóðandi:
On Tue, 15 Feb 2011 09:15:35 +0000, Arnar wrote:
Á vefsíðunni „Um okkur“ á vefnum kjósum.is er listi með nöfnum einstaklinga.
Samkvæmt fréttum af blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær kom fram að um væri að ræða margvísleg samtök. Ef marka má vefinn Kjósum.is eru einu samtökin að baki söfnuninni stjórnmálaflokkurinn Samtök fullveldissinna sem skráð eru fyrir léninu enda eru ábyrgðarmenn þeirra samtaka þarna á listanum.
Getur vefstjóri upplýst hvort einhver önnur samtök standi þarna að baki og þá hvaða?
Kv. Arnar Guðmundsson
—-
2011/2/15
Góðan dag Arnar.
Samtaða er óformlegur hópur einstaklinga úr ýmsum samtökum og utan samtaka. Engin samtök koma beint að Samstöðu. Þetta var tekið fram á blaðamannafundinum. Skráning lénsins á Samtök fullveldissinna var gert til að flýta uppsetningu vefsins, s.s fyrst og fremst praktísk eðlis.
Ástæða þess að skráningu hefur ekki verið breytt er vegna þess að þá myndu þeir sem eru á móti þessari undirskriftasöfnun nýta breytinguna til að gera söfnunina tortryggilegri en þeim hefur hingað til tekist.
Vefstjóri þekkir því miður ekki nema hluta þeirra koma að hópnum, og getur því ekki svarað hvernig dreifing hópsins er m.t.t. stjórnmálaskoðana o.sv.fv.
-vefstjóri
—-
On Wed, 16 Feb 2011 12:12:10 +0000, Arnar wrote:
Takk fyrir þetta svar nafnlausi vefstjóri.
Ég hef tvær brýnar spurningar til þín til viðbótar.
Hvernig get ég kannað hvort einhver hafi skráð mína kennitölu þarna að mér forspurðum?
Ég sé engan undirskriftalista og hef engin tök á að vita hvað stendur á bak við þennan teljara sem birtur er á vefsíðunni kjosum.is.
Annað mál og ekki síður mikilvægt. Eru Samtök fullveldissinna ekki eðli máls samkvæmt lagalega ábyrg fyrir meðferð þeirra gagna sem safnað er á síðu sem þau hafa skráð? Eða hafa Samtök fullveldissinna framvísað þeirri lagalegu ábyrgð á óformlegan hóp einstaklinga?
Kv.
Arnar
—-
2011/2/16
Sæll aftur.
Vefstjóri hefur flett upp kennitölum þeirra sem hafa óskað eftir því á
kurteisan hátt, en mun ekki geta það áfram ef holskefla beiðna berst.
Til þessa hefur enginn þeirra sem hafa óskað eftir því að kennitala sín
sé könnuð verið til staðar. Annars er vísað í algengar spurningar á
síðunni.
Samtök fullveldissinna er eigandi léns og því ábyrgðaraðili síðunar.
-vefstjóri
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
