Vilja skilríki frá þeim sem spyrja um nafn sitt í undirskriftasöfnun
Fjöldi einstaklinga, sem vildi vita hvort þá væri að finna á undirskriftalista kjósum.is, hefur nú fengið staðlað svar frá aðstandendum vefjarins, sólarhring eftir að forseta Íslands var afhentur nafnalistinn.
Þar er þess krafist að viðkomandi sendi vefstjóra persónuskilríki á rafrænu formi og er þetta sagt gert að höfðu samráði við Persónuvernd.
Í bréfinu segir:
„Þessi staðfesting þarf að berast sem mynd eða skönnun á persónuskilríki þess sem um uppflettingu biður, og gæta þarf þess að nafn og kennitala sé greinileg.
Við biðjum þá aðila sem sent hafa beiðni um uppflettingu en hafa ekki svar fengið ennþá afsökunar og óskum þess að þeir sendi beiðni sem uppfylli þessi skilyrði sem eru vegna persónuverndarsjónarmiða. Við munum svara öllum þeim tölvupósti sem hefur borist án þessara auðkenna með þessum leiðbeiningum til áréttingar. Einhvern tíma mun taka að vinna úr þeim beiðnum sem berast og biðjum við fólk að sýna vefstjórum biðlund. Öllum beiðnum verður svarað í þeirri tímaröð sem þau berast.
Fyrrnefnd regla gildir um allar þær beiðnir sem snúast að vinnslu persónuupplýsinga, hvort sem um ræðir fyrirspurn um hvor viðkomandi kennitala sé skráð eða ekki skráð, sem og fyrirspurnir um hversvegna einstaklingur geti ekki skráð sína kennitölu.“
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
