Steingrímur segist „forundrandi“ á ákvörðun forseta. Jóhanna: Virðum þessa niðurstöðu

Formenn stjórnarflokkanna á tröppum stjórnarráðsins eftir að forseti sendir IceSave aftur til þjóðarinnar.
Formenn stjórnarflokkanna áttu ekki von á því að forseti Íslands synjaði nýju IceSave lögunum staðfestingar, en segjast þó virða ákvörðun hans og ætla að undirbúa þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrst. Þau segja málið ekki hafa nein áhrif á ríkisstjórnina og að ekki komi til álita að rjúfa þing, enda hafi verið aukinn meirihluti fyrir málinu á Alþingi.
„Ríkisstjórnin stjórntæk, en það er umhugsun hvernig forsetinn beitir þessu valdi sínu. Það er þingræði í landinu og það var aukinn meirihluti sem staðfesti frumvarpið á Alþingi og því kemur þetta á óvart. En þetta var hans niðurstaða, við virðum hana og við förum í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Jóhanna við RÚV á tröppum stjórnarráðsins nú um fjögurleytið.
„Þetta eru vissulega vonbrigði. Ég bjóst við því að forsetinn myndi staðfesta lögin. Við erum að fara að hitta þingflokka eftir smá stund til að fara yfir þessa stöðu,“ sagði Jóhanna.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir þetta setja málið í ákveðið uppnám, enda hafi verið breið sátt á meðal stjórnmálaflokka um að ljúka því. Þá sé óvíst hvort samningarnir við Breta og Hollendinga standi áfram.
„Þannig að þessi niðurstaða setur það auðvitað í uppnám. En hún er komin, hún er endanleg, og við horfumst í augu við hana. Það fara þá fram kosningar eins fljótt og auðið er, að því tilskyldu að þetta tilboð verði áfram á borðinu,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon.
Hann sagði ákvörðun forsetans ekki hafa nein áhrif á ríkisstjórnina og að ekkert tilefni sé til þess að boða til þingkosninga.
„Nei, nei, það er ekkert slíkt á dagskrá, enda ekki á bætandi. Við bætum ekki einni óvsisu ofan á aðra,“ sagði hann.
„En það sem ég vil segja að öðru leyti er það að ég er fyrst og fremst undrandi. Ég er satt að segja forundrandi. Ég er það sem þingmaður á Alþingi Íslendinga í 28 ár. Ég er að hugsa um þingræðið og hvert við erum að stefna í þeim efnum. En það er þingsins að takast á við það og því er eðlilegt að þingflokkar komi saman.“
Jóhanna: Forsetinn tekur áhættu
Jóhanna minnir á að allir stjórnmálaflokkar á Alþingi hafi staðið að nýju samningunum og þykir henni forsetinn horfa framhjá þeirri staðreynd. Þá vitnar hún til þess að LeeBuchheit, formaður samninganefndarinnar, hafi varað eindregið við því að hafna málinu og fara með það fyrir dómstóla, enda felist í því veruleg áhætta.
„Þannig er forsetinn er þarna að taka verulega áhættu,“ sagði hún.
„Það má segja að forsetinn hafi tekið við þessu máli og gert þetta að máli forsetans,“ sagði Steingrímur. Hann taldi þó málið ekki hafa nein áhrif á sína stöðu og sagðist leggja sín verk óhræddur í dóm annarra.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
