eyjan.is

Viðskipti Mánudagur 21.02.2011 - 21:36 - Ummæli ()

Meirihluti þjóðarinnar myndi kjósa að samþykkja Icesave

Mynd: Sigurður Ólafsson/norden.org

Samkvæmt nýrri könnun MMR er meirihluti þjóðarinnar fylgjandi því að samþykkja frumvarpið um Icesave sem kosið verður um í þjóðaratkvæðagreiðslu á næstunni. Af þeim sem tóku afstöðu voru 60,7% sem sögðust styðja ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki nýjustu Icesave lögin og vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá voru 57,7% þeirra sem tóku afstöðu sem sögðust myndu kjósa með lögunum kæmu þau til atkvæðagreiðslu í dag.

Áberandi andstaða var við ákvörðun forsetans um að staðfesta ekki nýju Icesave lögin meðal stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar, en 74,3% þeirra kváðust ekki styðja ákvörðun forsetans. Á hinn bóginn voru 76,5% þeirra sem sögðust ríkisstjórninni andvígir sem kváðust styðja ákvörðun forsetans.

Ef horft er til afstöðu til komandi Icesave kosninga eftir stuðningi við stjórnmálaflokka má sjá að helmingur Sjálfstæðismanna (49,9%) hyggst kjósa með Icesave lögunum samanborið við 37,4% Framsóknarmanna, 83,1% Vinstri-grænna og 96,7% Samfylkingarfólks.e.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is