Viðskipti Mánudagur - 21.2 2011 - 12:12 - Ummæli ()

Ragnar Hall: Ekki ráðlegt að fella samkomulagið

Ragnar Hall hæstaréttarlögmaður, sem var andvígur fyrra Icesave-samkomulagi, segist hlynntur því að hinn nýi samningur verði samþykktur. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar. Ragnar gerði margvíslegar athugasemdir við fyrri samninginn og var í kjölfarið bætt inn í samkomulagið hinu svokallaða Ragnars Hall-ákvæði.

Ragnar sagðist telja best að ljúka þessari deilu með samningum frekar en að fara dómstólaleiðina, sem er líkleg afleiðing þess að samkomulaginu verði hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef niðurstaða dómstóla yrði sú „að við höfum að einhverju leyti vanrækt skyldur okkur varðandi þennan sjóð – þá væri það margfaldur skellur miðað við samninginn sem nú liggur fyrir. Það er ekki ráðlegt að taka þá áhættu.“

Aðspurður kvaðst Ragnar myndu greiða samningnum atkvæði sitt í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.


Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Facebook síða Twitter síða RSS straumar