eyjan.is

Viðskipti Þriðjudagur 22.02.2011 - 14:13 - Ummæli ()

70% fylgjandi afturköllun fiskveiðiheimilda í nýrri könnun MMR

Samkvæmt nýrri könnun MMR á afstöðu almennings til ráðstöfunar fiskveiðiheimilda er mikill stuðningur við hugmyndir í þá veru að ríkið afturkalli fiskveiðiheimildir, fari sjálft með eignarhald eða innheimti leigu fyrir afnotarétt sem endurspegli markaðsverðmæti kvótans.

Þannig voru 70% þeirra sem tóku afstöðu sem sögðu að þeir sem fengju úthlutað kvóta ættu að greiða leigu til ríkisins sem endurspeglar markaðsverðmæti kvótans, 67% sögðust því hlynnt að kvótinn ætti að vera í eigu ríkisins og 65% sögðu að stjórnvöld ættu að afturkalla gildandi kvóta og úthluta að nýju með breyttum reglum.

Þá kváðust 17% þeirra sem tóku afstöðu vera hlynnt því að handhafar kvóta greiddu eingöngu leigu fyrir afnotin sem næmi rekstrarkostnaði þeirra ríkisstofnana sem þjónusta sjávarútgerðina, 15% töldu að núverandi handhafar kvótans ættu að fá að halda honum áfram óskertum og 7% sögðust hlynnt því að þeir sem fengju úthlutað kvóta ættu að fá að ráðstafa honum að vild, þar með talið selja, leigja og veðsetja. 31% þeirra sem tóku afstöðu sögður vera sammála því að hagsmunir núverandi handhafa kvótans og þjóðarinnar í heild væru sameiginlegir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is