eyjan.is

Viðskipti Miðvikudagur 02.03.2011 - 10:49 - Ummæli ()

Hallgrímur kveður um afskriftir til útgerðarmanna: Ég þekki þæga menn

Hallgrímur Helgason sendir útgerðarmönnum tóninn í nýjasta hefti TMM. Kvæðið er hárbeitt samfélagssýn, eins og hans er von og vísa, en hann lætur sér ekki nægja að birta það í tímaritinu heldur kveður hann í eiginlegri merkingu og af mikilli innlifun í meðfylgjandi myndbandi.

Í samtali við Eyjuna segir Hallgrímur kvæðið sprottið úr fréttum af afskriftum til útgerðarfyrirtækja.

„Kvæðið datt óvart í mig 1. nóv. sl., þegar ég var út í Hrísey að skrifa, og sá fréttir af milljarðaafskriftum til útgerðarfyrirtækja sem fara fremst í fjármögnun baráttunnar gegn ESB en gera þó sjálf upp í evrum. Útgerðarmenn virðast alltaf eiga sína þægu menn í bankakerfinu, hvort sem það er fyrir bólu, í bólu eða eftir bólu. Stundum stuðlast svona viðbrögð manns við sjónvarpsfréttunum. Kvæðið er að finna í nýjasta hefti TMM, Tímariti Máls og menningar, sem Guðmundur Andri ritstýrir af alkunnum þokka,“ segir Hallgrímur.

Hallgrímur skýtur föstum skotum í kvæðinu, m.a. á þá tilhögun útgerða að gera upp í evrum, en vera samt andvíg ESB, og bendir líka á „vort daglegt blað – þótt það sé reyndar þjóðin, sem þarf að borga það.“

Hljóð og mynd er sögu ríkari, einsog sjá má á þessu myndbandi:

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is