eyjan.is

Viðskipti Þriðjudagur 08.03.2011 - 10:21 - Ummæli ()

Lyfjanotkun landans eykst ár frá ári. Eykst jafnvel þó landsmönnum fækki

Lyfjanotkun Íslendinga eykst ár frá ári

Alls fengu tæplega 235 þúsund Íslendingar 2,4 milljónir lyfjaávísana á síðasta ári en það ár jókst enn lyfjanotkun landans en sú aukning hefur staðið linnulaust síðan árið 2003. Jókst fjöldi lyfjaávísana jafnvel milli áranna 2009 og 2010 þótt landsmönnum hefði fækkað það árið.

Er þetta meðal þess sem í ljós kemur þegar rýnt er í tölur Landlæknisembættisins um lyfjanotkun landsmanna á síðasta ári. Sést þar veruleg aukning ávísana á hormónalyf, blóðlyf og æxlishemjandi lyf á liðnu ári. Varð þó aukning í öllum lyfjaflokkum.

Nokkur kynjamunur mælist sé litið á tölurnar. Þannig var ávísað hlutfallslega meira á kvenfólk en karla en hluta þess má skýra með ávísunum á getnaðarvarnir. Þó er aukning síðustu ára að töluverðu leyti tilkomin vegna karlmanna og það sama átti sér stað á seinni hluta síðasta árs.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is