Jón Gnarr talinn heiðar- legastur stjórnmálaleiðtoga þjóðarinnar

Borgarstjóri Reykjavíkur þykir manna heiðarlegastur af stjórnmálaleiðtogum
Jón Gnarr, borgarstjóri og oddviti Besta flokksins, er talin heiðarlegastur forsprakka stjórnmálaflokka samkvæmt nýrri úttekt Markaðs- og miðlarannsókna.
Var almenningur spurður út í hvaða hæfileikum þeir teldu að stjórnmálaleiðtogar hér á landi væru gæddir. 865 svöruðu spurningunum.
Er forvitnilegt að rýna í niðurstöðurnar sem sýna meðal annars að Steingrímur J. Sigfússon þykir mesti leiðtoginn af þeim sex er spurt er í út en þeir eru Bjarni Benediktsson, Steingrímur J. Sigfússon, Birgitta Jónsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Jón Gnarr, borgarstjóri, fær að fljóta með.
Helstu niðurstöðurnar eru:
- Steingrímur J. Sigfússon þykir manna ákveðnastur og eru 36,6 á því. Aðeins fimm prósent telja Jón Gnarr ýkja ákveðinn mann.
- Steingrímur fær líka flest atkvæði fyrir að vinna best undir álagi.
- Steingrímur þykir og mesti leiðtoginn af þeim stjórnmálamönnum sem leiða sína flokka. Þó fær hann þá einkunn aðeins hjá 14,9 prósent aðspurðra. Þar fær Birgitta Jónsdóttir minnsti leiðtoginn með aðeins 1,1 prósent svarenda á þeirri skoðun.
- Birgitta hins vegar fær flest atkvæði fyrir að standa á sannfæringu sinni og er, að frátöldum Jóni Gnarr, sá forsprakki flokks sem fólk telur hvað heiðarlegastan. Segja 28,8 prósent Jón Gnarr borgarstjóra heiðarlegastan meðan 25 prósent telja þann heiður tilheyra Birgittu.
- Jón Gnarr tekur titilinn einnig í tveimur flokkum til viðbótar. Annars vegar þykir hann gæddur hvað mestum persónutöfrum, 29,5 prósent, og hins vegar í mestum tengslum við almenning í landinu, 23,7 prósent.









Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
