Traust á forseta Íslands eykst töluvert. Rýrnar gagnvart Steingrími og Jóhönnu

Alls 902 einstaklingar tóku þátt í traustskönnun MMR
Ný könnun leiðir í ljós að traust almennings til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta, eykst töluvert meðan mun færri bera traust til forsætið- og fjármálaráðherra en í síðustu könnun.
Leiðir úttekt Markaðs- og Miðlarannsókna þetta í ljós en þar létu 41,7 prósent aðspurðra í ljós traust sitt á forseta Íslands. Eru það mun fleiri en lýstu yfir trausti til hans samkvæmt síðustu slíkri könnun frá maí á síðasta ári þegar tæp 27 prósent treystu forsetanum vel.
Aukið traust er á Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, samkvæmt könnuninni en honum treysta nú vel 19,1 prósent sem er stökk frá síðastu könnun þegar 13,8 prósent lýstu yfir trausti í honum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar, fellur lítið eitt milli kannana. Treysta 15,3 prósent honum í dag en það hlutfall var 15,9 prósent áður. Formaður þingflokks Hreyfingarinnar, Margrét Tryggvadóttir, nýtur trausts 9,8 prósent aðspurðra.
Traust á Jóni Gnarr, borgarstjóra, hefur ekki verið mælt áður en 15,8 prósent bera mikið traust til hans.
Könnunin í heild hér.

Könnun MMR um traust á stjórnmálaleiðtogum
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
