eyjan.is

Viðskipti Þriðjudagur 29.03.2011 - 15:30 - Ummæli ()

Spara aðeins sex milljónir í ár vegna skólasameiningar í Reykjavík

Kostnaður sem til fellur vegna sameiningar leik- og grunnskóla borgarinnar er töluverður fyrsta árið

Sú upphæð sem borgaryfirvöld spara sér á þessu ári vegna sameiningarhugmynda sinna varðandi leik- og grunnskóla nær ekki nema sex milljónum króna. Er lítill sparnaður þetta árið tilkominn vegna biðlaunagreiðslna borgarinnar til þeirra sem sagt verður upp störfum.

Kemur þetta fram í tölum Fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Tiltekur skrifstofan þó að 30 milljónir sparist á ársgrundvelli með sameiningu yfirstjórna grunnskóla og frístundaheimila auk 105 milljóna króna sparnaðar á ársgrundvelli vegna sameiningar leikskóla.

Fellur til töluverður kostnaður nú vegna sameiningarferlisins en stærsti hlutinn eru biðlaun stjórnenda sem pokann sinn taka vegna breytinganna.

Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs borgarinnar, segir við Eyjuna að þessar tölur komi ekki á óvart heldur þvert á móti. Vitað var þegar farið var í ferlið að sparnaður fyrsta árið yrði alltaf takmarkaður. Það breyti engu um áætlunina né seinki henni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is