eyjan.is

Viðskipti Mánudagur 04.04.2011 - 12:03 - Ummæli ()

Könnun: Helmingur lýsir yfir ánægju með störf forseta Íslands

Ólafur Ragnar á stuðning helmings aðspurðra í nýrri könnun

Helmingur, 50 prósent, segjast mjög ánægð eða frekar ánægð með störf forseta Íslands samkvæmt nýrri könnun. Innan við 20 prósent segjast frekar eða mjög óánægð.

Virðist forsetinn því hafa góðan stuðning nú þegar líða fer að nýjum forsetakosningum á næsta ári en Ólafur Ragnar Grímsson hefur þó ekki gefið út opinberlega hvort hann geti hugsað sér fjögur ár til viðbótar á stóli forseta.

Könnunin var framkvæmd af MMR en þar segjast ennfremur 30,2 prósent hvorki ánægð né óánægð með störf forsetans. 97 prósent aðspurðra tóku afstöðu en rúmlega 900 manns tóku þátt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is