Tæp 70 prósent stjórnenda telja eitthvað svigrúm til launahækkana

Meirihluti stjórnenda fyrirtækjanna telja eitthvað svigrúm til launahækkana hérlendis.
Tæplega 70 prósent stjórnenda fyrirtækja telja eitthvað svigrúm til staðar til launahækkana í kjaraviðræðum Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins samkvæmt nýrri könnun. Þó eru aðeins 19 prósent þeirra á því að laun megi almennt hækka um sjö prósent eða meira en það er sú tala sem nefnd hefur verið í viðræðunum.
Könnun þessa framkvæmdi MMR fyrir Viðskiptablaðið en tæplega 500 stjórnendur íslenskra fyrirtækja tóku þátt.
Samkvæmt henni eru 30 prósent stjórnenda á því að svigrúm sé ekkert til hækkana. 24 prósent til viðbótar telja svigrúmið afar lítið eða milli eitt og þrjú prósent. 27 prósent segja laun mega hækka um allt að sex prósent og 15 prósent stjórnenda segjast ráða við sjö til tíu prósenta launahækkanir. Fjögur prósent geta hækkað laun án teljandi vandræða um ellefu prósent eða meira.
Ummæli ( )
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
